Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar fundar um kjaramál

Áríðandi fundur í stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar verður haldinn þriðjudaginn 27. janúar kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Aðalumræðuefni fundarins verður kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands sem kynnt verður Samtökum atvinnulífsins næstkomandi mánudag.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Fundargerð síðasta fundar

2. Inntaka nýrra félaga

3. Kröfugerð SGS – næstu skref

4. Verkfallsaðgerðir

5. Kynnisferð stjórnar og trúnaðarmannaráðs

6. Leiga á sumarbústað í Hvalfirði sumarið 2015

7. Aðalfundur Húsfélagsins í Þorrasölum

8. Sjónvarpsþáttur um starfsemi félagsins

9. Lagfæringar á sumarbústað félagsins  í Dranghólaskógi

10. JS-Seafood- ógreidd laun til starfsmanna

11. Önnur mál

Svava Árnadóttir sem býr á Raufarhöfn situr í stjórn Framsýnar. Hún mun væntanlega taka þátt í fundinum á þriðjudaginn eins og aðrir stjórnar og trúnaðarmannaráðsmenn innan Framsýnar.

Deila á