![OLYMPUS DIGITAL CAMERA](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/ab0913-001-150x150.jpg)
Fulltrúar aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands sitja nú á fundum í Reykjavík. Unnið er að því að klára mótun á kröfugerð sem lögð verður fyrir forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins í kjölfarið. Að kröfugerðinni standa 16 félög inna Starfsgreinasambandsins.
Svo kölluð Flóabandalagsfélög standa þar fyrir utan eins og hefð er fyrir. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, tekur þátt í þessari vinnu fh. Framsýnar. Fundað verður fram á föstudag.
![OLYMPUS DIGITAL CAMERA](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/10/ab0913-001-1024x768.jpg)
Formaður Framsýnar er í Reykjavík þar sem unnið er að því að klára mótun á kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands.