12. þings ASÍ-UNG verður haldið dagana 5.–6. nóvember nk. á Hótel Reykjavík Öskju. Yfirskrift þingsins er „Hvað situr eftir? – Kjör, skattar og framtíðartækifæri ungs fólks“. Framsýn mun að sjálfsögðu senda fulltrúa á þingið enda öflugt ungliðastarf innan félagsins. Ungliðastarfið miðast við þá sem eru innan við 35 ára aldur á vinnumarkaði.