Hafa áhyggjur af stöðu mála – veiðiheimildir tapast

Á fundi stjórnar og trúnaðarmannaráðs Framsýnar fyrir helgina kom fram að menn hafa miklar áhyggjur af þeim mikla flutningi sem verið hefur á aflaheimildum frá Húsavík í önnur byggðalög. Þar eru menn að horfa til þess að sjávarútvegsfyrirtækið Vísir hf. í Grindavík fór með verulegan kvóta úr bænum þegar þeir tóku ákvörðun um að hætta starfsemi á Húsavík í vor og þá hafa nokkrir kvótahafar á félagssvæði Framsýnar selt veiðiheimildirnar í burtu af svæðinu. Eðlilega hafa heimamenn áhyggjur af þessari þróun. Eftir umræður um málið var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:
Ályktun
Um veiðiheimildir
„Framsýn stéttarfélag lýsir yfir óánægju sinni með þann mikla tilflutning sem orðið hefur á veiðiheimildum úr sveitarfélögum á félagssvæði Framsýnar yfir í önnur byggðalög á síðustu misserum.
Framsýn skorar á sveitarstjórn Norðurþings að kanna hvort rétt hafi verið staðið að þessum tilflutningum á veiðiheimildum, það er hvort farið hafi verið eftir gildandi lögum og reglum sem gilda um sölu á veiðiheimildum úr byggðalögum.
Framsýn telur það vera siðferðislega skyldu kvótahafa á hverjum tíma að bjóða heimamönnum í sjávarútvegi forkaupsrétt á veiðiheimildum áður en þær eru boðnar til sölu á almennum markaði.  Þannig er hægt að stuðla að því að öflugur sjávarútvegur haldist á svæðinu.“
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kom saman til fundar síðasta fimmtudag. Á fundinum var m.a. fjallað um sölu á veiðiheimildum úr byggðalaginu sem er slæm þróun að mati forsvarsmanna Framsýnar.
Deila á