Fræðsla í góða veðrinu í morgun

Unglingar úr Vinnuskólanum í Þingeyjarsveit hafa verið á Húsavík í morgun. Þau komu við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fengu góða kynningu á starfsemi félagsins í fyrirlestri og með því að horfa á kynningarmyndband sem er á heimasíðu stéttarfélaganna. Sjá myndir:
Áhugasamir unglingar úr Þingeyjarsveit ásamt flokkstjórum komu við á Skrifstofu stéttarfélaganna í morgun.
Deila á