Samkvæmt ársreikningum Framsýnar var fjárhagsleg afkoma félagsins mjög góð á árinu 2013. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi félagsins í kvöld. Rekstrarafgangur varð á öllum sjóðum félagsins. Félagsgjöld og iðgjöld hækkuðu frá síðasta ári. Rekstrarútgjöld félagsins hækkuðu einnig milli ára.
Rekstrartekjur félagsins námu kr. 144.177.030,- sem er aukning um 5,7% milli ára. Rekstrargjöld námu 116.226.997,- sem er aukning um 14,4% milli ára. Þessi hækkun er ekki síst tilkomin vegna hækkana á styrkjum til félagsmanna. Fjármagnstekjur námu kr. 59.357.840,-. Félagsgjöld og iðgjöld námu kr. 115.193.347,- á móti kr. 108.421.029,- á árinu 2012.
Á síðasta ári varð tekjuafgangur félagsins í árslok kr. 82.138.782,- en var kr. 127.402.818,- árið 2012.
Heildareignir félagsins námu kr. 1.482.592.787,- í árslok 2013 samanborið við kr. 1.392.692.578,- í árslok 2012.
Rekstur Skrifstofu stéttarfélaganna gekk vel á síðasta ári. Þátttaka Framsýnar í rekstrarkostnaði nam kr. 35.600.860. Önnur aðildarfélög greiddu kr. 6.330.525 kr. til rekstrarins.
Innheimta félagsgjalda var með svipuðu sniði og árið á undan. Almennt eru launagreiðendur samviskusamir að skila félagsgjöldum og mótframlögum á réttum tíma.
Félagsmenn Framsýnar til sjávar og sveita gleðjast yfir góðum rekstri Framsýnar sem skilar sér beint til félagsmanna í góðri þjónustu og aðgengi þeirra að öflugum styrkjum í gegnum sjóði félagsins.