Ályktun stjórnar BSRB

„Tekjuskattslækkun á 2. skattþrepi mun aðeins koma þeim tekjuhærri til góða og í reynd hækka hlutfallslega skattbyrði þeirra sem lægst hafa launin,“ er meðal þess sem segir í ályktun stjórnar BSRB sem samþykkt var á fundi stjórnar BSRB á föstudag. Á stjórnarfundinum var m.a. fjallað um stöðu mála í komandi kjarasamningsviðræðum, stöðuna í viðræðum um lífeyrismál  og fjallað var um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.

Hér að neðan má sjá ályktun stjórnar BSRB um fjárlagafrumvarpið. 

Ályktun stjórnar BSRB um fjárlagafrumvarp                                                                                              

Stjórn BSRB lýsir vonbrigðum sínum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Fyrstu verk nýrrar stjórnar voru að hafna milljarða tekjum frá útgerðinni og ferðaþjónustunni. Þess í stað á að rétta hallann með niðurskurði á opinberri þjónustu, afnámi vaxta á láni Seðlabankans og fyrirframgreiðslum úr þrotabúum föllnu bankanna.

Ríkisstjórnin hefur einnig valið að framlengja ekki skatta á þá efnamestu, tekjustofna sem meira að segja Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur í nýlegri skýrslu sinni sagt að séu nauðsynlegir til að rétta af halla á ríkisrekstri og stuðla að frekari jöfnuði fólks. Þá mun boðuð tekjuskattslækkun á 2. skattþrepi aðeins koma þeim tekjuhærri til góða og í reynd hækka hlutfallslega skattbyrði þeirra sem lægst hafa launin.

Með því að hverfa frá lækkun skatta á auðmenn og útgerðir væri hægt að rétta heilbrigðiskerfið við og takast á við einhver þeirra fjölmörgu verkefna sem þegar þarfnast úrlausna. Slíkar aðgerðir gætu dregið úr þeim aðhaldskröfum sem settar eru fram í nýju fjárlagafrumvarpi og um leið tryggt heilbrigðis- og almannaþjónustunni það fjármagn sem nauðsynlegt er til að velferð landsmanna geti aftur orðið með því besta sem gerist.

Deila á