„Veðurfræðingar“ spá góðu veðri

Veðurfræðingar Heimasíðu stéttarfélaganna hafa gefið út langtímaspá eftir hundleiðinlegan vetur. Spáin tekur mið af hegðun og atferli fólks á Húsavík. Í gær mátti sjá garðyrkjustjóra bæjarins á  ferð ásamt aðstoðarfólki við að snyrta tré og runna sem loksins eru komnir upp úr snjónum, það er sumstaðar. Þá mátti sjá brottflutta Húsvíkinga spóka sig á Húsavík í gær, þannig að fyrstu vorboðarnir eru komnir sem er vísbending um betra veður og gott sumar.

 Jan garðyrkjustjóri Norðurþings ásamt aðstoðarmanni voru að laga til á Húsavík í gær. Þeir voru hressir eins og sjá má.

Vorboðinn, Hanna Björk, var ásamt öðrum starfsmönnum Norðurþings að snyrta bæinn í gær.

Vorboðarnir að sunnan,  Elín Þórhallsdóttir og Rut Káradóttir eru hér ásamt frænku Elínar frá Húsavík, Sif Heiðarsdóttir. Sagan segir að Elín hafi verið á Húsavík í gær til að fjárfesta í ferðaþjónustu sem eru að sjálfsögðu ánægjulegar fréttir. Þá er mjög líklegt að Rut hafi verið með henni til að taka út húsnæðið þar sem hún er einn fremsti innanhússarkitekt landsins.

Deila á