Meðlimir Starfsmannafélags Húsavíkur hafa nokkra möguleika til starfsmenntunar. Þrír möguleikar eru í boði. Það er að segja:

  • Mannauðssjóðururinn Hekla
  • Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags Húsavíkur
  • Þróunar- og símenntunarsjóður bæjarstarfsmanna hjá ríkinu

Mannauðssjóðurinn Hekla.

Starfsmannafélag Húsavíkur hefur aðild að Mannauðssjóðnum Heklu. Aðild að sjóðnum eiga stofnfélagar og félagsmenn þeirra.

Upplýsingar um stjórn sjóðsins, virkni hans og annað eru á heimasíðu sjóðsins.

Þróunar og símenntunarsjóður bæjarstarfsmannafélaga hjá ríkinu.

Markmið sjóðsins er að auka möguleika ríkisstofnana, sem neðangreind stéttarfélög eiga félagsmenn hjá, til að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana á hverjum tíma og efla símenntun félagsmanna með það fyrir augum að þeir séu færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.

Þær stofnanir sem hafa rétt  til þess að sækja í sjóðinn vegna félagsmanna í bæjarstarfsmannafélögum hjá ríkinu eru:

  • Heilbrigðisstofnanir Austurlands, Norðurlands, Suðurnesja, Suðurlands, Vestfjarða og Vesturlands
  • Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu
  • Sjúkrahúsið á Akureyri
  • Framhaldsskólar: Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Framhaldsskólinn á Húsavík, Framhaldsskólinn á Laugum, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Menntaskóli Borgarfjarðar, Verkmenntaskóli Austurlands og Verkmenntaskólinn á Akureyri.

Stéttarfélög sem geta sótt í sjóðinn eru:

Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, FOSS stéttarfélag í almannaþjónustu, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar, Starfsmannafélag Húsvíkurkaupstaðar. 


Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum mönnum til tveggja ára í senn, tveimur skipuðum af fjármálaráðherra og tveimur af hlutaðeigandi stéttarfélögum. Stjórnin kýs sér formann og varaformann. Arna Jakobína Björnsdóttir formaður, fulltrúi Kjalar stéttarfélags, Einar Már Þórðarson meðstjórnandi,  fulltrúi fjármálaráðherra og Unnur Sigmarsdóttir meðstjórnandi, fulltrúi Samflots bæjarstarfsmannafélaga.

Hægt er að sækja um í sjóðinn hér.

Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags Húsavíkur.

Starfsmenntunarsjóður S.T.H. starfar innan Starfsmannafélags Húsavíkur. Markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn sem eru á vinnumarkaði til náms og endurmenntunar svo þeir geti á hverjum tíma tileinkað sér tæknibreytingar og tekist á við vandasamari störf. Rétt til styrks hafa þeir sem verið hafa félagsmenn í sex mánuði og eru virkir félagsmenn við lok náms/námskeiðs.

Um úthlutanir fer eftir reglugerð sjóðsins.  Launagreiðendur greiða framlag í sjóðinn í samræmi við kjarasamninga á hverjum tíma.

Stjórn sjóðsins er skipuð þremur mönnum, þ.e. frá Starfsmannafélagi Húsavíkur annars vegar og Norðurþingi hins vegar.

Helstu úthlutunarreglur sjóðsins eru:

  • Styrkir til félagsmanna vegna starfstengdra námskeiða. Hámarksstyrkur kr. 140.000,- á ári. Námskeiðsgjald/námskostnaður er greiddur að fullu. Útlagður ferða- og gistikostnaður er greiddur að fullu.
  • Styrkir til félagsmanna vegna tómstundanámskeiða. Hámarksstyrkur kr. 40.000,- á ári. Námskeiðsgjald/námskostnaður er greiddur að hálfu.
  • Styrkur til háskólamenntaðra félagsmanna. Stjórn sjóðsins getur ákvarðað háskólamenntuðum félagsmönnum hærri styrki, vegna þátttöku á starfstengdum námskeiðum, sem nemur allt að áttföldu iðgjaldi launagreiðanda sbr. grein 3.a. vegna þeirra s.l. 12 mánuði. Heildarstyrkur félagsmanns verður þó aldrei hærri en kr. 195.000,- á ári.
  • Sjóðnum er ekki heimilt að taka þátt í tekjutapi félagsmanna vegna námskeiða eða námsdvalar, fæðiskostnaði eða kostnaði sem launagreiðanda greiðir í samræmi við ákvæði kjarasamninga.
  • Félagar sem vinna hluta úr ári fá styrk sem nemur að hámarki fimmföldu félagsgjaldi síðustu 12 mánuði.

Nánari upplýsingar eru í boði á Skrifstofu stéttarfélaganna sími 464-6600.

Deila á