Framsýn styður heilshugar við bakið á sjómönnum og aðstandendum

Eins og fram hefur komið fórst fiskiskipið Jökull ÞH frá Raufarhöfn síðastliðinn miðvikudag í hörmulegu sjóslysi. Sautján skipverjar voru um borð þegar skipið sökk, en fjórtán var bjargað. Af 17 manna áhöfn voru 15 þeirra í Framsýn stéttarfélagi. Þeir sem fórust voru jafnframt félagsmenn í Framsýn. Félagið mun standa vaktina með áhöfn Jökuls, aðstandendum og útgerð skipsins á þessum erfiðu tímum þar sem að mörgu er að hyggja. Dæmi eru um að áhafnarmeðlimir og aðstandendur þeirra hafi þegar sett sig í samaband við félagið, hefur þeim verið boðin aðstoð eftir þörfum.

Deila á