Forsvarsmenn Framsýnar fóru á dögunum í vinnustaðaheimsóknir austan Húsavíkur. Komið var víða við, ekki tókst að heimsækja alla vinnustaði á svæðinu en tími til þess gefst vonandi í annarri ferð í desember. Að sjálfsögðu urðu líflegar skoðanir um málefni svæðisins og þá komu landsmálin einnig til umræðu. Þegar farið er um svæðið sést vel hvað það er mikilvægt að hafa verslunar- og þjónustufyrirtæki sem næst íbúum á viðkomandi stöðum. Sem betur fer er haldið úti verslun á Raufarhöfn, Kópaskeri og í Ásbyrgi. Full ástæða er til að minna íbúa á mikilvægi þess að versla í heimabyggð, hver vill vera án þess að hafa aðgengi að verslun í sinni heimabyggð?


