Neyðarkallinn fagnar 20 ára afmæli

Stefán Stefánsson stjórnarmaður í Framsýn fór og verslaði neyðarkall af Björgunarsveitinni Stefáni í Mývatnssveit fyrir hönd Framsýnar stéttarfélags. Hér er hann ásamt formanni sveitarinnar, Kristjáni Steingrímssyni. Neyðarkallinn var til sölu víða um land í nóvember.

Í ár fagnar Neyðarkall björgunarsveitanna 20 ára afmæli, en átakið hófst árið 2006. Í tvo áratugi hefur almenningur, fyrirtæki og félagasamtök sýnt björgunarsveitunum ómetanlegan stuðning með kaupum á Neyðarkalli og þannig lagt sitt af mörkum til öflugs björgunar- og slysavarnastarfs um allt land.

Árlegt fjáröflunarátak Neyðarkallsins er ein af mikilvægum stoðum í starfi björgunarsveita og slysavarnadeilda. Allur ágóði af sölunni rennur til starfsins og nýtist meðal annars til kaupa á búnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar viðbragðsgetu.

Framsýn er stoltur stuðningsaðili enda verslað  Neyðarkall af björgunarsveitunum í Þingeyjarsýslum til fjölda ára.

Deila á