Atkvæðagreiðsla að hefjast um kjarasamning smábátasjómanna

Aðildarfélög Sjómannasambands Íslands hafa ákveðið að viðhafa sameiginlega atkvæðagreiðslu um nýgerðann kjarasamning sambandsins við Landsamband smábátasjómanna og Samtök smærri útgerða. Kjarasamningurinn var undirritaður 13. nóvember. Framsýn á aðild að samningnum fyrir sína félagsmenn sem starfa á smábátum. Framsýn mun bjóða félagsmönnum, sem eru á kjörskrá, að greiða atkvæði um samninginn rafrænt á heimasíðu félagsins. Kjörgögn munu berast félagsmönnum á næstu dögum.

Stefnt er á að atkvæðagreiðsla um samninginn hefjist föstudaginn 20. nóvember kl. 12:00 og að henni ljúki mánudaginn 30. nóvember kl. 16:00.​​  Þeir sjómenn sem telja sig hafa kjörgengi, en fá ekki kjörgögn í netpósti er velkomið að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Jafnframt er hægt að senda fyrirspurnir varðandi kjarasamninginn á netfangið kuti@framsyn.is. Óski sjómenn eftir því að fá kynningu á samningnum verður orðið við því að sjálfsögðu.

Deila á