Fyrir helgina skrifuðu samtök sjómanna undir kjarasamning við Landssamband smábátaeigenda (LS) og Samtök smærri útgerða (SSÚ). Samningurinn nær m.a. til smábátasjómanna innan Framsýnar, samningurinn fer á næstu dögum í atkvæðagreiðslu. Nýr kjarasamningur fyrir smábáta
Vissulega er það mikið fagnaðarefni að loksins hafi tekist að gera nýjan samning fyrir áhafnir smábáta. Síðast var gerður kjarasamningur fyrir smábátasjómenn árið 2012.
Samningurinn er í anda þess samnings sem sjómenn gerðu 2024 við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS.
M.a. var samið um að sjómenn á smábátum fái 3,5% í tilgreinda séreign frá útgerðinni. Samningurinn fer nú í kynningu meðal félagsmanna og atkvæðagreiðslu að henni lokinni.
Þau félög auk Sjómannasambandsins sem aðild eiga að samningnum eru Félag Skipstjórnarmanna, FS, VM- félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, SVG.
Gildistími samningsins er til 2033 en báðir aðilar geta sagt honum upp á tímabilinu. Útgerðin 2028 og sjómenn 2029.