Jóna Árný Sigurðardóttir hefur verið ráðin til starfa á Skrifstofu stéttarfélaganna. Hún mun hefja störf um næstu áramót. Umsækjendur um starfið voru 21. Stéttarfélögin bjóða Jónu velkomna til starfa. Jóna Árný hefur frá árinu 2017 verið stöðvarstjóri N1 á Húsavík. Þar áður var hún Hótelstjóri Fosshótel Húsavík og Fosshótel Reykholt í um tíu ára skeið auk þess sem hún starfaði hjá erlendum ferðaþjónustuaðilum, það er áður en hún tók við starfi hótelstjóra á Fosshótel Húsavík árið 2007. Jóna Árný mun sinna almennum skrifstofustöfum á Skrifstofu stéttarfélaganna en hún býr yfir mikilli reynslu og þekkingu hvað varðar íslenskan vinnumarkaðinn.