Skrifstofa stéttarfélaganna auglýsti nýlega eftir starfsmanni í almenn störf á skrifstofunni í stað Aðalsteins J. Halldórssonar sem hætti störfum hjá félögunum í haust. Gríðarlegur áhugi er fyrir starfinu sem endurspeglast í því að á þriðja tug umsækjenda skilaði inn umsóknum um starfið. Fulltrúaráð stéttarfélaganna sem skipað er fulltrúum rekstraraðila frá Framsýn, STH og Þingiðn munu á allra næstu dögum ganga frá ráðningu á nýjum starfsmanni. Vonast er til að hann geti hafið störf sem fyrst.