ASÍ krefst réttlátra umskipta á breyttum vinnumarkaði

47. þingi Alþýðusambands Íslands fór fram í Reykjavík fyrir helgina, þingið stóð yfir frá miðvikudegi til föstudags undir yfirskriftinni „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Um 300 þingfulltrúar sóttu viðburðinn, þar af sex frá Framsýn og Þingiðn. Þingið samþykkti nokkrar ályktanir s.s.um efnahagslegt og félagslegt réttlæti, um góð störf, réttindi og öryggi launafólks á breyttum vinnumarkaði og um færni, þekkingu og menntun. Í ályktununum krefst þingið þess að ávinningur nýrrar tækni og grænna umskipta skili sér til almennings en ekki fárra, hafnar því að efnahagslegum áskorunum sé mætt með auknum byrðum á launafólk og skorar á stjórnvöld og sveitarfélög að tryggja örari uppbyggingu viðráðanlegs húsnæðis um allt land. Allar upplýsingar um störf þingsins og ályktanir má finna á heimsíðu ASÍ https://asi.is/

Þau stóðu vaktina fyrir Framsýn og Þingiðn á þinginu, þetta eru þau Agnes, Guðný, Ingimar, Ósk og Jónas Kristjánsson. Á myndina vantar Aðalstein Árna formann Framsýnar.
Setið og hlustað á fróðleg erindi á þinginu.
Flestum ber saman um að þingið hafi verið verulega stormasamt en um 300 þingfulltrúar tóku þátt í þinginu.
Deila á