Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags, var kjörinn í miðstjórn Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sambandsins sem lauk síðdegis á föstudaginn. Þingið sem haldið var í Reykjavík stóð yfir í þrjá daga. Þetta er í fyrsta sinn sem Aðalsteinn tekur sæti í miðstjórn ASÍ. „Hlotnaðist sá heiður að vera kjörinn í miðstjórn sambandsins í fyrsta skiptið á mínum ferli sem forsvarsmaður í stéttarfélagi,“ segir Aðalsteinn í samtali við husavik.com, sem lýsir þinginu jafnframt sem stormasömu. https://www.husavik.com/2026/10/adalsteinn-arni-baldursson-kjorinn-i-midstjorn-asi-stormasomu-thingi-lokid/ Tæplega 300 þingfulltrúar sóttu þingið. Aðalsteinn segir að félagi hans, Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness, hafi lagt fram tillögu um kjör hans í miðstjórn í gegnum Starfsgreinasamband Íslands sem hafði heimild til að tilnefna þrjá fulltrúa í miðstjórn en alls sitja 15 einstaklingar í miðstjórn sambandsins frá aðildarfélögum og samböndum innan Alþýðusambands Íslands.
Talsverðar breytingar urðu á forystu ASÍ á þinginu. Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti sambandsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, 1. varaforseti. Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, var kjörin 2. varaforseti og Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, 3. varaforseti. Georg Páll sagði í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að hann vildi stuðla að aukinni einingu innan ASÍ og bera klæði á vopnin eftir átök innan verkalýðshreyfingarinnar. Undir þau orð tekur nýkjörinn miðstjórnarmaður, Aðalsteinn Árni Baldursson.

