Boðið að heimsækja Belkod

Formanni Framsýnar, Aðalsteini Árna, var á dögunum boðið að heimsækja húsvíska fyrirtækið Belkod. Fyrirtækið er til heimils að Garðarsbraut 62. Auk þess að vera með starfsemi á Húsavík er Belkod með útibú bæði á Akureyri og Reykjavík enda hefur starfsemi fyrirtækisins vaxið umtalsvert frá stofnun þess árið 2017. Upphaflega planið var að bjóða upp á raflagnahönnun og mögulega innflutning á ljósum og öðrum rafmagnsvörum til Íslands. Síðan þróaðist starfsemin í innflutning og hönnun á vönduðum sænskum einingahúsum og ýmsum öðrum byggingavörum og lausnum. Félagið flytur einnig inn ýmsan tæknibúnað eða eins og stendur á Facebook síðu fyrirtækisins, „Belkod er innflytjandi að hágæða byggingarefni frá Skandinavíu, m.a. vönduðum einingahúsum frá Svíþjóð. Við sérhæfum okkur í einingahúsum, krosslímdum timbureiningum, sökkulkerfum og lýsingu. Ásamt því bjóðum við upp á hönnun og teikningar.“ Það voru þeir Höskuldur Skúli Hallgrímsson framkvæmdastjóri og Bjarki Baldvinsson viðskiptastjóri Belkod sem tóku á móti formanni Framsýnar. Í máli þeirra kom fram að sjö starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu. Óskuðu þeir eftir góðu samstarfi við stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum ekki síst hvað varðar uppbyggingu á nýju húsnæði á svæðinu. Því var mjög vel tekið af formanni Framsýnar.

Sjá frekar um starfsemi fyrirtækisins: https://www.belkod.se/

Deila á