Fyrir helgina lauk tveggja daga málþingi NU-HRCT í Reykjavík. NU-HRCT er norrænn samstarfsvettvangur stéttarfélaga starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum og veitingahúsum, auk annarra starfa í ferðaþjónustu. Bæði Starfsgreinasamband Íslands og Matvís eiga aðild að samtökunum og komu að undirbúningi og skipulagningu málþingsins. Málþingið sóttu 20 fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum, þar á meðal formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson, sem jafnframt situr í framkvæmdastjórn SGS. Fundurinn var staðfundinn auk þess sem fundarmönnum bauðst að vera á teams frá Norðurlöndunum.
Markmið málþingsins var að auka skilning á kjarasamningum í hótel- og veitingagreinum á Norðurlöndunum, greina hvað er líkt og ólíkt milli landa og miðla reynslu milli þátttakenda.
Meðal umræðuefna voru verklag við gerð kjarasamninga, launastig og launaþróun í greininni, vinnutími og fyrirkomulag hans, hlutastörf og helstu áskoranir sem blasa við í hverju landi.
Að málþinginu loknu fór hópurinn í skoðunarferð um Grindavík til að skoða ummerki eldsumbrotanna. Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, tók á móti hópnum og fór ásamt leiðsögumanni yfir það sem gerst hefur í Grindavík.
Það er ávallt gagnlegt að ræða sameiginleg viðfangsefni við félaga okkar á Norðurlöndunum, bera saman reynslu og læra hvert af öðru. Málþingið gaf okkur hjá SGS ýmsar gagnlegar hugmyndir og áherslur sem við tökum með okkur inn í áframhaldandi starf.
