Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, kom saman til fundar í gærkvöldi. Algjör samstaða var meðal nefndarmanna að leita allra leiða til að ná samkomulagi við SA og stjórnvöld um að samningarnir héldu í stað þess að þeim yrði sagt upp þann 8. október. Svo fór í kjölfarið að Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði sem Starfsgreinasamband Íslands, Efling stéttarfélag og Samiðn – Samband iðnfélaga mynda, skrifaði undir framlengingu kjarasamninga við Samtök atvinnulífisins (SA) í gærkvöldi. Launafólk innan breiðfylkingarinnar telur um 60% af félagsmönnum Alþýðusambands Íslands.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir í samtali við mbl.is að það sem kom samkomulagi yfir línuna hafi verið heildstætt mat á þeirri vinnu sem staðið hafi yfir undanfarið.
„Það er ekki vitglóra í öðru en að bjarga þessum kjarasamningum – bjarga því að launafólk fái þær launahækkanir sem það á að fá núna eftir áramót.“ Vilhjálmur segir að sem dæmi muni lægsti taxti verkafólks í fyrsta skipti, fara yfir 500 þúsund krónur. „Það hefði verið galið að fara að stefna slíkum launahækkunum í hættu á sama tíma og atvinnuleysið er að aukast.“ SGS hefur boðað til formannafundar um tíðindin kl. 11:00 í dag. Sjá frekar frétt mbl.is https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/10/06/breidfylkingin_skrifadi_undir_framlengingu_vid_sa/

