Lægsta mánaðargjaldið hjá Völsungi

Æfingagjöld geta numið yfir hálfri milljón á ári fyrir tvö börn sem iðka knattspyrnu og körfubolta eftir að frístundastyrkir sveitarfélags hafa verið nýttir. Samanburður ASÍ sýnir að aldur barna, val á íþróttafélagi og búseta geta skipt verulegu máli fyrir útgjöld fjölskyldna. Ný samantekt á fimleikagjöldum sýnir að kostnaður getur verið mikill þótt barn stundi aðeins eina íþrótt.  Þá er töluverður munur á gjöldunum milli félaga. Lægsta mánaðargjaldið er hjá Völsungi, 3.750 kr., en hæst hjá Björk, 21.064 kr. Sjá samantekt ASÍ. https://asi.is/kostnadur-vid-ithrottir-getur-hlaupid-a-hundrudum-thusunda-fristundastyrkir-duga-skammt/

Deila á