Boðað til fundar um stöðuna í kjaramálum

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar sem jafnframt er samninganefnd félagsins hefur verið boðuð á fund á morgun þriðjudag kl. 17:00 til að fara yfir stöðuna í kjaramálum, nú þegar forsendur kjarasamninga eru brostnar. Taka þarf ákvörðun í síðasta lagi þann 8. október nk. verði niðurstaðan sú hjá aðildarfélögum/samböndunum innan ASÍ að segja upp gildandi kjarasamningum. Um 30 félagsmenn sitja í samninganefnd Framsýnar. Bæði Starfsgreinasamband Íslands og Landssamband ísl. verslunarmanna hafa boðað til formannafunda í dag til að fara yfir stöðuna sem er grafalvarleg. Framsýn á aðild að báðum þessum landssamböndum og munu því taka þátt í þessum fundum.     

Deila á