Heimild til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar vekur hörð viðbrögð

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 er að finna heimild til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Áformin hafa vakið hörð viðbrögð á svæðinu og segjast bæði forsvarsmenn Framsýnar og Norðurþings ætla að bregðast við málinu.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags, segir í samtali við Húsavík.com að félagið hafa þegar brugðist við málinu.

„Ég er búinn að setja mig í samband við alla þingmenn kjördæmisins og vildi fá það staðfest hvort þeir ætluðu virkilega að standa að því að selja flugstöðina á Húsavíkurflugvelli,“ segir Aðalsteinn. Hann segir fyrstu viðbrögð þingmanna benda til þess að málið hafi komið mörgum þeirra á óvart. Sjá frekar umfjöllun husavik.com:

Deila á