Tilkynning til sjómanna

Frá 1. september 2026 geta sjómenn nálgast upplýsingar um sig inn á Mínar síður á Island.is undir “Starfsleyfi” – “Starfsleyfi sjómanna”

Undir “Próf, nám og frestir” má nálgast upplýsingar um nám, námskeið, verkleg próf vegna skemmtibátaskírteina, sveinspróf, gilda fresti vegna öryggisfræðslunámskeiða, fjarskiptaréttindi, gild alþjóðleg sjómannalæknisvottorð og staðfestingar til erlends fánaríkis um gildi alþjóðlegra atvinnuskírteina.

Undir “Atvinnuskírteini” birtast gild atvinnuskírteini, hæfnisskírteini, skemmtibátaskírteini, þar á meðal skírteinistegund, réttindaflokkur og gildislokadagsetning, áritanir erlends sjómanns til starfa á íslenskum skipum. Auks þess gild atvinnuskírteini sem leiðsögumaður skipa, hafnsögumaður skipa, réttindi á björgunarskip og atvinnukafaraskírteini. Á síðunni eru réttindaflokkar útlistaðir:  “Nánar um réttindaflokka skírteina”

Undir “Lögskráningar” birtast heildarlögskráningardagar, siglingatími eftir stöðu og skipaflokkum, auk upplýsinga um gildar undanþágur og gildar sjóferðabækur.

Samgöngustofa vill hvetja sjómenn að kynna sér þessar upplýsingar og fylgjast vel með gildistíma sinna atvinnuskírteina, læknisvottorða og öryggisnámskeiða og annarra réttinda. Mikilvægt er að sækja tímanlega um endurnýjanir atvinnuskírteina hjá Samgöngustofu og skrá sig á tímanlega á öryggisnámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna svo lögskráning geti gengið snurðulaust fyrir sig.

Ef upplýsingar eru rangar eða vantar eru sjómenn hvattir til að senda Samgöngustofu tölvupóst og viðeigandi gögn á sigling@samgongustofa.is

Upplýsingar þessar eru byggðar á lögskráningarkerfi sjómanna, eða Skútunni, sem tekin var í notkun í maí 2023: https://island.is/s/samgongustofa/frett/ny-skipaskra-og-loegskraning-sjomanna

Deila á