Miðvikudaginn 2. september skrifuðu Framsýn og Fjallalamb undir samkomulag um kaup og kjör starfsfólks í sláturhúsi fyrirtækisins á Kópaskeri. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa fjársterkir aðilar samþykkt að koma að rekstri fyrirtækisins með auknu hlutafé. Um er að ræða afskaplega ánægjuleg tíðindi. Hefð er fyrir því að fulltrúar frá Framsýn og Fjallalambi setjist niður á haustin og semji um kaup og kjör starfsmanna fyrirtækisins við sauðfjárslátrun það haustið. Töluverð óvissa hefur verið með áframhaldandi rekstur Fjallalambs og margir hafa haft áhyggjur af því að reksturinn legðist af í haust, en svo verður ekki, þökk sé fjársterkum aðilum sem ákveðið hafa að veðja á frekari rekstur Fjallalambs. Björn Víkingur Guðmundsson framkvæmdastjóri Fjallalambs og Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar undirrituðu samninginn en slátrun hjá Fjallalambi hefst á næstu dögum. Búið er að ráða starfsfólk í flestar stöður. Reiknað er með að slátrað verði fleira fé í ár á sláturhúsinnu en á síðasta ári.