Guðný Grímsdóttir, trúnaðarmaður Framsýnar í Laugafiski og varamaður í stjórn Framsýnar er sextug í dag. Ekki nóg með það heldur kveður hún vinnustað sinn til 30 ára líka um þessar mundir. Þar hefur hún verið trúnaðarmaður í 20 ár en afar sjaldgæft er að trúnaðarmenn starfi svona lengi.
Meðfylgjandi mynd er fengin að láni af fésbókarsíðu Samherja en þarna má sjá Guðnýju ásamt vinnufélögum.
Starfsfólk og stjórn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslu vilja koma á framfæri við Guðnýju hamingjuóskum með daginn og kærum þökkum fyrir samstarfið í gegnum árin sem hefur verið mjög gott í alla staði.