Meðfylgjandi þessari frétt er grein sem verkalýðsforingjarnir, Halla Gunnarsdóttir, Jakob Tryggvason, Andri Reyr Haraldsson, Eiður Stefánsson, Gunnar Sigurðsson og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifuðu nýlega inn á visi.is.
„Á meðan athygli stjórnmálamanna og kjósenda beinist að þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB tikkar klukkan á vinnumarkaði. Þann 27. ágúst nk. verður vísitala neysluverðs birt og ársverðbólga mun mælast svo há að forsendur kjarasamninga bresta. Mánuðum saman hefur verkalýðshreyfingin kallað eftir aðgerðum og viðbrögðum frá bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum, en án árangurs.“ https://www.visir.is/g/20262919059d/sumar-an-adgerda