Jarðböðin í Mývatnssveit eru orðin afar glæsileg eftir breytingarnar sem unnið hefur verið að síðustu mánuði og ár. Samkvæmt samkomulagi við Jarðböðin eiga félagsmenn stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum rétt á 15% afslætti fari þeir í böðin. Biðja þarf um afsláttinn þegar greitt er í Jarðböðin. Sé þess óskað þurfa félagsmenn að framvísa launaseðli sem staðfestir að þeir séu að greiða í Framsýn eða aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna. Þá er alltaf hægt, það er á opnunartíma, að koma við á skrifstofunni og fá staðfestingu um að viðkomandi aðili sé félagsmaður í stéttarfélögunum áður en haldið er í böðin.