Söguganga um Torgið á Mærudögum 

Laugardaginn 25. júlí kl.16:00 stendur Átthagafélag Torgara fyrir sögugöngu um Rauðatorgið. Farið verður frá Árholti. Finna má viðburðinn í dagskrá Mærudaga. Rifjaðar verða upp sögur frá æskuslóðunum á Torginu. Gengið verður um götur svæðisins og endað við Kvíabekk. Gönguna leiða Torgarar sem eru kunnugir staðháttum. Rétt er að hvetja alla Torgara og aðra áhugasama til að mæta og taka þátt í göngunni og upplifa skemmtilegar sögur af mönnum og málefnum svæðisins frá fyrri tíð.

Deila á