Í morgun fóru starfsmenn stéttarfélaganna með fundargerðarbækur Framsýnar, Þingiðnar og Starfsmannafélags Húsavíkur og forvera þeirra í varanlega geymslu hjá Héraðsskjalasafni Þingeyinga. Sá mikli meistari, Snorri G. Sigurðsson héraðsskjalavörður, tók við þessum merku heimildum úr starfi stéttarfélaganna. Það er frá því að Verkamannafélag Húsavíkur var stofnað 14. apríl 1911. Reyndar er fyrsta fundargerðarbók félagsins því miður tínt. Bækurnar sem farið var með í morgun telja 86 bækur en í gegnum tíðina hafa stéttarfélög í Þingeyjarsýslum sameinast og eru í dag aðeins þrjú. Félögin hafa ákveðið að leggjast í vinnu í vetur hvað það varðar að skoða kosti þess og galla að félögin sameinist í eitt öflugt stéttarfélag í Þingeyjarsýslum. Fyrir nokkrum árum var áveðið að hætta að skrifa fundargerðir stéttarfélaganna í fundargerðarbækur. Þess í stað eru þær aðgengilegar á rafrænu formi. Næsta vetur stendur til að taka þær saman og færa Héraðsskjalasafni Þingeyinga. Nánar um það síðar.