STH gefur börnum sólmyrkvagleraugu

Stjórn Hagsmunasamtaka barna á Húsavík ákvað að leita eftir liðstyrk við að útvega börnum á Húsavík sólmyrkvagleraugu þeim að kostnaðarlausu. Við vonum að það muni vekja áhuga þeirra á þessum merkilega viðburði sem almyrkvi er og á geimnum yfirleitt. Það er skemmst frá því að segja að Starfsmannafélag Húsavíkur ákvað að styrkja okkur um 100.000 kr. til þess að kaupa sólmyrkvagleraugu handa öllum börnum á Húsavík, og kunnum við þeim okkar albestu þakkir, mikill rausnarskapur. Gleraugun verða afhent í nýja listagalleríinu Fum&fok um leið og þau berast, en það verður nánar auglýst síðar.

Deila á