Vinnustaðaheimsóknir í dag

Formaður Framsýnar kom víða við í dag, hann var beðinn um að sitja fund með landvörðum Náttúruverndarstofnunnar í Mývatnssveit sem eru með aðstöðu í Gíg, gestastofu. Hann fór yfir réttindi og skyldur starfsmanna og stofnanasamninginn sem gildir fyrir starfsmenn við landvörslu. Þaðan var síðan brunað austur í Gljúfrastofu í Ásbyrgi í sömu erindagjörðum til að hitta landverði líkt og í Mývatnssveit sem starfa við landvörslu á vegum Náttúruverndarstofnunnar. Þar var nýbakað brauð á borðum. Góðar umræður urðu í ferðinni um málefni landsvarða og þá var hugur í landvörðum í Gljúfrastofu að kjósa sér trúnaðarmann. Meðal landvarða í Mývatnssveit er Sigurður Erlingsson trúnaðarmaður starfsmanna en hann er jafnframt félagsmaður í Framsýn. Auk þessa tveggja  stóru vinnustaða var ferðin notuð til að koma við á nokkrum smærri vinnustöðum við þjóðveginn.

Tugir starfsmanna starfa við landvörslu í Þingeyjarsýslum. Hér má sjá landverði sem gáfu sér tíma til að taka þátt í starfsmannafundi sem haldinn var í Gljúfrastofu í dag. Gestur fundarins var formaður Framsýnar.
Aðstaða landvarða í Gíg, sem er upplýsinga- og gestastofa, er afar glæsileg. Formaður Framsýnar átti góða stund með starfsmönnum sem koma víða að til að gegna þessum mikilvægu störfum.
Það var töluvert um gesti í gestastofunum í dag, bæði í Mývatnssveit og eins í Ásbyrgi enda náttúruperlur á hverju strái.
Deila á