Sumarferð í Fjörður á vegum stéttarfélaganna 15. ágúst

Stéttarfélögin standa fyrir sögu- og gönguferð í Fjörður laugardaginn 15. ágúst og er um að ræða dagsferð. Hvalvatnsfjörður og Þorgeirsfjörður, austan Eyjafjarðar eru oft saman kallaðir Fjörður, en það er afskekkt og einstaklega fallegt svæði sem fór í eyði árið 1944. Áður hafa stéttarfélögin staðið fyrir sumarferðum í Flatey og á Flateyjardal. Byggðin við ysta sæ, á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda var nátengd og þar má finna gamlar minjar frá fyrri tímum sem bera vitni um líf og störf fólks sem áður bjó á þessum afskekkta stað. Farið verður frá Húsavík með rútu kl. 08:00 og ekið sem leið liggur um Dalsmynni að Grýtubakka í Höfðahverfi. Þaðan höldum við út Leirdalsheiði til Hvalvatnsfjarðar, þar sem við reimum við á okkur gönguskóna og röltum í rólegheitunum yfir hálsana til Þorgeirsfjarðar. Áætlað er að gangan taki einn og hálfan tíma hvora leið, en um er að ræða þægilega og fallega gönguleið sem ætti að vera við flestra hæfi. Grillveisla verður boði stéttarfélaganna, en að öðru leyti nesta menn sig sjálfir. Fararstjórar og leiðsögumenn verða Ósk Helgadóttir og Hermann Gunnar Jónsson, sem þekkir svæðið þar ytra mjög vel. Áætluð heimkoma til Húsavíkur er um kl. 19:00. Skráning og frekari upplýsingar um ferðina er hægt að nálgast á Skrifstofu stéttarfélaganna. Þátttökugjaldið er kr. 15.000,-  fyrir félagsmenn. Ekki missa af þessari einstöku ferð í Fjörður, þar sem sagan drýpur af hverju strái. Þar sem ekki komast fleiri en 30 í ferðina borgar sig að skrá sig sem allra fyrst. Hægt verður að skrá sig í ferðina til 31. júlí enda verði þá ekki orðið fullt í ferðina. Meðfylgjandi myndir eru úr síðustu ferð sem farin var á vegum stéttarfélaganna í Fjörður.

Deila á