Aðalfundur Framsýnar samþykkti að hefja viðræður við Þingiðn og Starfsmannafélag Húsavíkur um sameiningu félaganna en þau hafa um árabil tekið sameiginlega skrifstofu á Húsavík. Reynist vilji til þess að sameina félögin og sé það framkvæmanlegt, verði stjórnum þeirra falið að meta niðurstöðuna og bera hana undir félagsfundi í hverju félagi fyrir sig. Markmiðið verði að endanleg niðurstaða, hvað sameininguna varðar, liggi fyrir á aðalfundum félaganna vorið 2027. Formanni og varaformanni var falið að fylgja málinu eftir fh. félagsins.