Sjálfkjörið var í stjórnir, ráð og nefndir á vegum Framsýnar fyrir komandi kjörtímabil sem er til tveggja ára, það er frá aðalfundinum 2026 til aðalfundarins 2028. Á fundinum komu ekki fram aðrar tillögur um félagsmenn í trúnaðarstöður fyrir félagið og var því listi fráfarandi stjórnar og trúnaðarráðs sjálfkjörinn. Tveir nýir og öflugir stjórnarmenn koma inn í aðal- og varastjórn. Nanna Steina Höskuldsdóttir frá Raufarhöfn kemur ný inn í aðalstjórn en hún hefur ekki starfað áður fyrir félagið og Sólveig Mikaelsdóttir kemur inn í varastjórn en hún hefur setið í trúnaðarráði félagsins. Magnaðar konur á ferð. Eru þær boðnar velkomnar til starfa. Á meðfylgjandi mynd er Nanna Steina með fundarstjóra aðalfundarins sem jafnframt er varaformaður Framsýnar.
