Reksturinn til fyrirmyndar – klappað fyrir starfinu

Fjármálastjóri Framsýnar, Elísabet Gunnarsdóttir, fór yfir ársreikning félagsins á aðalfundinum. Ársreikingurinn er endurskoðaður af PWC sem gerir ekki athugasemdir við rekstur félagsins. Þess í stað fara þeir mjög fögrum orðum um rekstur og starfsemi félagsins.

Fjárhagsleg afkoma félagsins var góð á árinu 2025. Félagsmönnum fækkaði lítillega á milli ára úr 3.048 iðgjaldagreiðendum í 3.034 eða um 14 félagsmenn. Rekstrarafgangur var af öllum sjóðum félagsins nema fræðslusjóði. Þess ber að geta að Fræðslusjóður Framsýnar hefur ekki fastar tekjur, aðrar en fjármagnstekjur, en veitir félagsmönnum viðbótarstyrki til starfsmenntunar þegar rétti þeirra er lokið úr kjarasamningsbundnum fræðslusjóðum s.s. Landsmennt, Ríkismennt, Sveitamennt, Sjómennt og Fræðslusjóði verslunarmanna. Ekki er lagt upp með að Skrifstofa stéttarfélaganna skili hagnaði enda skal rekstur hennar skiptast á deildir Framsýnar, Þingiðnar og STH. Rekstrartekjur félagsins námu kr. 469,8 milljónum sem er hækkun um 11,7% milli ára. Skýrist að mestu af söluhagnaði. Félagsgjöld og iðgjöld námu kr. 381 milljón 2025 á móti kr. 369,2 milljónum á árinu 2024 sem er hækkun upp á um 3,25%. Rekstrargjöld hækka óverulega á milli ára en þau námu kr. 324 milljónum 2025 samanborið við 323 milljónir árið á undan. Bætur og styrkir úr sjúkrasjóði er stærsti einstaki útgjaldaliður Framsýnar. Rekstur skrifstofunnar gekk vel á síðasta ári. Þátttaka Framsýnar í rekstri nam kr. 78 milljónum. Þingiðn og Starfsmannafélag Húsavíkur greiddu saman kr. 6,5 milljónir til rekstursins. Fjármagnstekjur námu kr. 134 milljónum en voru 144,2 milljónir á árinu 2024. Í árslok 2025 var tekjuafgangur félagsins kr. 267,7 milljónir en var kr. 232,9 milljónir árið 2024. Heildareignir félagsins námu kr. 3.496 milljónum í árslok 2025 samanborið við kr. 3.208 milljónir í árslok 2024. Útistandandi iðgjöld í lok árs eru kr. 41,6 milljónir í árslok 2025 samanborið við kr. 44 milljónir í árslok 2024. Skammtímaskuldir lækka á milli ára og fara úr kr. 86,2 milljónum í 70,4 milljónir. Leiðrétting var gerð á eigin fé frá fyrri árum, samtals að fjárhæð 36,2 milljónir. Þessi leiðrétting er vegna ótekjufærðra iðgjalda frá árunum 2017 og fyrr.

Elísabet fjármálastjóri stéttarfélaganna fór yfir ársreikinga félagsins fyrir árið 2025. Eftir umræður um skýrlsu stjórnar og reikinga stóðu fundarmenn upp og klöppuðu fyrir öflugu starfi í þágu félagsmanna og samfélagsins.
Deila á