Ég fer í fríið – Framsýn umhugað um orlofsmál félagsmanna

Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna ásamt Verkalýðsfélagi Þórshafnar hafa í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf um orlofsmál. Stéttarfélögin eru með sameiginlega orlofsnefnd sem vinnur að því að bjóða félagsmönnum upp á marga góða kosti varðandi orlofsdvöl og sífellt er unnið að því að auka framboðið. Í því sambandi má nefna að framboð félagsmanna í gegnum orlofsvef stéttarfélaganna hefur verið aukið á liðnum árum með samningum við ferðaþjónustuaðila víða um land. Þannig vilja félögin stuðla að því að félagsmenn geti notið þess að fara í frí innanlands. Framsýn á tvö orlofshús,  á Illugastöðum og í Dranghólaskógi og fimm íbúðir í Kópavogi og eina á Akureyri og Húsavík. Orlofshúsið í Dranghólaskógi hefur verið notað í leiguskiptum á sumrin fyrir annað orlofshús í Svignaskarði í Borgarfirði sem er í eigu Eflingar. Leiguskiptin hafa komið vel út. Þá eiga Þingiðn og Framsýn saman íbúð í gegnum Hrunabúð sf. að Garðarsbraut 26, efri hæð sem hefur verið í fastri útleigu. Á síðasta ári dvaldi fjöldi félagsmanna ásamt fjölskyldum sínum í orlofshúsum, orlofsíbúðum, á tjaldsvæðum og hótelum á vegum félagsins. Veruleg ásókn er í orlofshúsin en félagið niðurgreiðir orlofsdvöl félagsmanna í orlofsíbúðum/húsum  sem auðveldar fólki að njóta orlofsdvalar með fjölskyldum sínum á Íslandi. Ekki er óalgengt að niðurgreiðslurnar séu um kr. 60.000,- fyrir viku dvöl í þeim húsum sem félagið er með á leigu hjá öðrum aðilum. Þá fengu 68 félagsmenn endurgreiðslur vegna dvalar á tjaldsvæðum 2025 eða alls kr. 1.535.126,-. Árið áður fengu 55 félagsmenn tjaldstæðisstyrki, samtals kr. 1.185.697,-. Boðið var upp á sumarferð á vegum stéttarfélaganna 2025. Farið var í Flateyjardal og tókst ferðin í alla staði mjög vel. Ósk Helgadóttir varaformaður skipulagði ferðina með starfsmönnum  félaganna. Til viðbótar gafst félagsmönnum kostur á að kaupa gistimiða á hótelum/gistiheimilum víða um land. Framsýn hefur ekki gefist upp við að berjast fyrir frekara áætlunarflugi til Húsavíkur. Hvað það varðar hefur félagið verið í góðu sambandi við forsvarsmenn Norðurþings og fyrirtækja í ferðaþjónustu á Húsavík. Skrifstofa stéttarfélaganna er með samning við Icelandair um afsláttarkjör fyrir félagsmenn sem ferðast milli landa með flugfélaginu. Samningurinn felur í sér að Icelandair veitir stéttarfélögunum 10 til 20% afslátt frá fullu verði. Á móti niðurgreiða félögin flugmiðana til félagsmanna. Það er, félagsmenn geta verslað gjafabréf í gegnum orlofsvef stéttarfélaganna sem gefur þeim góð afsláttarkjör upp í fullt fargjald hjá flugfélaginu. Þessar upplýsingar eru aðgengilegar í ársskýrslu Framsýnar.

Deila á