Hermína Hreiðarsdóttir formaður Starfsmannafélags Húsavíkur fór yfir starfsemi félagsins á aðalfundinum og Elísabet Gunnarsdóttir fjármálastjóri félagsins gerði grein fyrir ársreikningum félagsins. Fundurinn fór fram í fundarsal stéttarfélaganna. Hér verður stiklað á stóru hvað varðar yfirferð formanns og fjármálastjóra:
Fjöldi virkra félagsmanna STH sem greiddu að meðaltali í félagssjóð árið 2025 skv. félagatali í DK voru 77 en voru 73 á sama tíma í fyrra. Félagsmönnum hefur því fjölgað aðeins milli ára. Samkvæmt lögum BSRB skal tala fulltrúa miðast við félagatölu eins og hún reyndist í janúar það ár sem halda skal þing BSRB. Til viðbótar þessum fullgildu félagsmönnum bætast við gjaldfrjálsir félagsmenn. Áætlaður fjöldi þeirra er um 10% af greiðandi félögum á hverjum tíma.
Félagsgjöld og iðgjöld ársins 2025 námu kr. 13.511.584,- en voru kr. 12.304.624,- árið á undan. Rekstrargjöld voru kr. 15.812.685,- og hækkuðu því milli ára úr kr. 11.259.269,-.
Fjármunatekjur voru kr. 3.001.400,- samanborið við kr. 3.348.824,- árið á undan.
Samkvæmt sameinuðum rekstrar- og efnahagsreikningi nam tekjuafgangur félagsins kr. 64.668.433,- samanborið við kr. 7.202.865,- tekjuafgang frá fyrra ári. Þar af er söluhagnaður kr. 60.959.599. Heildareignir í árslok voru kr. 155.333.172,- og eigið fé nam kr. 152.417.023,-. Hefur það aukist um 74% frá fyrra ári. Rekstur Skrifstofu stéttarfélaganna gekk vel á síðasta ári. Þátttaka Starfsmannafélagsins í rekstrarkostnaði nam kr. 2.449.754,-.
Félagið gekk frá endurnýjuðum stofnanasamningi við Framhaldsskólann á Húsavík. Þá var jafnframt gengið frá endurnýjuðum stofnanasamningi við HSN á vegum starfsmannafélaga innan BSRB á Norðurlandi sem aðild eiga að samningnum.
Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna eiga mjög gott samstarf um orlofsmál. Í því sambandi eru þau með sameiginlega orlofsnefnd sem vinnur að því að bjóða félagsmönnum upp á marga góða kosti varðandi orlofsdvöl og sífellt er unnið að því að auka framboðið. Í því sambandi má nefna að framboð félagsmanna í gegnum orlofsvef stéttarfélaganna hefur verið stóraukið með samningum við ferðaþjónustuaðila víða um land. Þannig vilja félögin stuðla að því að félagsmenn geti notið þess að fara í frí innanlands.
5 félagsmenn fengu greidda tjaldstæðisstyrki á árinu 2025, samtals kr. 124.930,-.
Á síðasta starfsári seldi félagið orlofsíbúðina í Sólheimum í Reykjavík. Söluverðið var kr. 66.000.000,-. Í stað íbúðarinnar í Sólheimum var nýlega gengið frá kaupum á íbúð í Þorrasölum 1-3 í Kópavogi. Kaupverðið er kr. 67.900.000,-. Það er í sama fjölbýlishúsi og Þingiðn og Framsýn eiga orlofsíbúðir. Íbúðin ætti að komast í leigu til félagsmanna síðar í sumar. Með kaupum félagsins á íbúð í Þorrasölum verða allar orlofseignir stéttarfélaganna komnar í sama fjölbýlishús sem er af hinu góða og auðveldar auk þess allt eftirlit með íbúðum félaganna. Auk íbúðarinnar í Þorrasölum á félagið eitt orlofshús á Eiðum, líkt og var með íbúð félagsins í Sólheimum gekk rekstur orlofshússins vel á starfsárinu. Starfsfólk Skrifstofu stéttarfélaganna sér um að halda utan um úthlutun og rekstur á eignunum.
Á síðasta ári voru greiddir samtals kr. 1.470.400,- í námsstyrki til 19 félagsmanna. Þá fengu félagsmenn greiddar kr. 150.000,- í heilsustyrki frá félaginu.
Atvinnuástandið hjá félagsmönnum hefur almennt verið með miklum ágætum. Ekki er að sjá að sveitarfélögin á svæðinu muni draga úr starfsemi á komandi árum. Því ætti atvinnuástandið að haldast áfram gott hjá félagsmönnum.
Stéttarfélögin stóðu að venju fyrir hátíðarhöldum á Fosshótel Húsavík 1. maí. Boðið var upp á veglega hátíð þar sem heimamenn voru í aðalhlutverki ásamt góðum gestum. Þá var boðið upp á veglegt kaffihlaðborð. Hátíðarhöldin á Fosshótel Húsavík voru vel sótt og öllum til mikils sóma.
STH hefur komið að nokkrum málum frá síðasta aðalfundi. Ástæða er til að gera aðeins grein fyrir nokkrum þeirra: Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna hafa komið upp góðu samstarfi við Íslandsbanka þar sem aðilar frá stéttarfélögunum og útibúi bankans á Húsavík hittast reglulega og fara yfir þróun vaxtamála á reikningum stéttarfélaganna á hverjum tíma. Afar mikilvægt er að fylgst sé reglulega með þróun vaxtamála enda hefur ávöxtun félaganna á bankainnistæðum bein áhrif á starfsemi þeirra og getu til að gera vel við félagsmenn.
Félagið hefur komið að kynningum á starfsemi stéttarfélaga í grunnskólum á félagssvæðinu með öðrum aðildarfélögum Skrifstofu stéttarfélagsanna. Samþykkt var að styrkja Mærudagshátíðina á Húsavík sumarið 2025 um kr. 50.000,-. Félagið kom að því að niðurgreiða leikhúsferðir félagsmanna á leikrit á vegum Leikdeildar Eflingar sem var til sýnis eftir áramótin 2026.
Hlutverk trúnaðarmanna á vinnustað er mjög mikilvægt, bæði fyrir félagsmenn og ekki síst fyrir stjórn stéttarfélagsins og starfsfólk þess. Hlutverk og staða trúnaðarmanna er ákveðin bæði í lögum og í kjarasamningum. STH hefur lagt mikið upp úr því að hafa öfluga trúnaðarmenn á vinnustöðum. Til að efla þekkingu trúnaðarmanna eru reglulega haldin trúnaðarmannanámskeið fyrir trúnaðarmenn stéttarfélaganna sem aðild eiga að Skrifstofu stéttarfélaganna, nú síðast í mars 2026.
Verkalýðsfélag Þórshafnar hefur undanfarin ár verið með þjónustusamning við Skrifstofu stéttarfélaganna varðandi þjónustu við félagsmenn. Samstarf aðila hefur verið með miklum ágætum.
Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna mynda með sér Fulltrúaráð sem skipað er formönnum þessara félaga. Fulltrúaráðinu er ætlað að fylgjast með sameiginlegri starfsemi félaganna, ekki síst sem viðkemur rekstri skrifstofunnar. Fulltrúaráðið kemur saman til fundar eftir þörfum.
Rekstur á sameiginlegum eignum stéttarfélaganna hefur gengið vel. Félögin eiga í sameiningu skrifstofuhúsnæðið að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Þá eiga Framsýn og Þingiðn efri hæðina í sömu byggingu sem ber nafnið Hrunabúð sf. Húsnæðið var málað að utan í sumar auk þess sem skipt var um glugga á efri hæðinni, það er á norðurhliðinni.
Rekstur Skrifstofu stéttarfélaganna gekk að venju vel á síðasta starfsári. Félagið er aðili að Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík ásamt Framsýn og Þingiðn. Þar starfa í dag 6 starfsmenn í 4,8 stöðugildum. Að auki hafa 4 starfsmenn verið í hlutastörfum hjá stéttarfélögunum við að þjónusta orlofsíbúðir í Kópavogi, Akureyri og í Öxarfirði. Starfshlutfall þeirra er um 30% að meðaltali. Eftir sölu félagsins á íbúð félagsins í Sólheimum var gengið frá starfslokum við Halldór Guðnason sem starfað hefur sem húsvörður fyrir Starfsmannafélagið í Sólheimum í tæp 20 ár. Full ástæða er til að þakka Halldóri fyrir hans störf í þágu félagsins í tvo áratugi. Skrifstofa stéttarfélaganna er opin átta tíma á dag. Starfsfólk skrifstofunnar er í góðu sambandi við félagsmenn og eru heimsóknir á skrifstofuna mjög tíðar. Auk þess er stórum hluta starfsins sinnt í gegnum síma, tölvur og með heimsóknum á vinnustaði og í skóla. Ekki eru fyrirsjáanlegar breytingar á rekstri skrifstofunnar.