Á aðalfundi Þingiðnar sem fram fór í maí var Jónas Kristjánsson endurkjörinn sem formaður félagsins til næstu tveggja ára að telja. Á meðfylgjandi mynd er Jónas með tveimur fulltrúum úr stjórn þeim Þórði Aðalsteins og Hólmgeri R. Hreinssyni. Með þeim á myndinni er Kristinn sem var hér á árum áður í stjórn félagsins um árabil. Jónas Hallgrímsson var endurkjörinn sem varaformaður félagsins og Hermann Sigursson sem meðstjórnandi. Sjá nánar hér https://framsyn.is/thingidn/stjorn-og-nefndir/ um þá sem kjörnir voru í stjórnir, ráð og nefndir á vegum Þingiðnar á næsta kjörtímabili sem eru tvö ár.