Framkvæmdir við byggingu nýs fjölnýtingarhúss við Þeistareyki eru hafnar. Húsið verður leigt til GeoSilica og standa vonir til að starfsemi geti hafist sumarið 2026. Það er reyndar margt fleira í gangi á Þeistareykjum, s.s. bygging nýrrar toppvélar og stækkun virkjunarinnar. Allt um það á framkvæmdavef Þeistareykja.