Breytingar gerðar á reglugerð Sjúkrasjóðs Þingiðnar

Aðalfundur Þingiðnar samþykkti að skýra betur reglugerð sjúkrasjóðs félagsins. Það er hvenær atvinnulausir félagsmenn eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum og hvernig fara skuli með félagsmenn, það er konur á meðgöngu, það er réttarstaða þeirra í sjóðnum verði þær af atvinnutekjum á meðgöngu vegna veikinda. Breytingarnar eru feitletraðar.

Falli félagsmaður sem greitt hefur félagsgjald af atvinnuleysisbótum til félagsins út af atvinnuleysisbótum vegna eigin veikinda skal hann eiga rétt á sjúkradagpeningum í samræmi við reglugerð sjúkrasjóðs. „Falli réttur til atvinnuleysisbóta niður af öðrum ástæðum s.s. vegna þess að viðkomandi hafi klárað bótaréttinn hjá Atvinnuleysistryggingasjóði er dagpeningaréttur eigi til staðar.

Konur á meðgöngu sem klára veikindaréttinn hjá sínum atvinnurekendum, og eru í ráðningarsambandi, eiga rétt á sjúkradagpeningum. Þó ekki lengur en tveimur mánuðum fyrir fæðingu barns enda eigi viðkomandi aðili rétt á lengingu fæðingarorlofs vegna eigin veikinda á meðgöngu. Sama á við um ef viðkomandi fellur út af atvinnuleysisbótum vegna veikinda á meðgöngu.“

Deila á