Vilja hefja viðræður við Framsýn um sameiningu félaganna

Á aðalfundi Þingiðnar í maí urðu umræður um sameiningu stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum. Áður hafði Fulltrúaráð stéttarfélaganna, sem skipað er fulltrúum frá Þingiðn, Framsýn og Starfsmannafélagi Húsavíkur samþykkt að skora á félögin að taka málið upp með eftirfarandi yfirlýsingu:

„Fulltrúaráð stéttarfélaganna, Framsýnar, Þingiðnar og Starfsmannafélags Húsavíkur, skorar á aðalfundi félaganna 2026 að samþykkja að stéttarfélögin hefji viðræður um sameiningu félaganna. Viðræðum verði lokið fyrir 31. desember 2026. Reynist vilji til þess að sameina félögin og sé það framkvæmanlegt, verði stjórnum þeirra falið að  meta niðurstöðuna og bera hana undir félagsfundi í hverju félagi fyrir sig. Markmiðið verði að endanleg niðurstaða, hvað sameininguna varðar, liggi fyrir á aðalfundum félaganna vorið 2027. Þannig samþykkt á fundi í Fulltrúaráði stéttarfélaganna 18. maí 2026.“

Eftir góðar umræður var samþykkt að taka vel í hugmyndina um að hefja viðræður við Framsýn og STH um að sameina félögin í eitt öflugt stéttarfélag, það er að skoða kosti þess og galla.

Deila á