Aðalfundur Starfsmannafélags Húsavíkur verður haldinn mánudaginn 1. júní kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna.
Dagskrá:
a) Kjör á starfsmönnum fundarins
b) Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
c) Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
d) Ákvörðun félagsgjalds
e) Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarskrifstofu
f) Lagabreytingar, ef þær liggja fyrir
g) Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna samkvæmt 8. grein
h) Kosning fulltrúa í orlofsnefnd, ferðanefnd og starfskjaranefnd
i) Kosning fulltrúa á þing BSRB
j) Ákvörðun um laun stjórnar, annarra stjórna, ráða og nefnda
k) Önnur mál
Á fundinum verða íbúðakaup félagsins í Þorrasölum til umræðu auk þess sem tillaga um viðræður um sameiningu stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum verður tekin til umræðu. Jafnframt liggur fyrir fundinum tillaga um að færa grunn- og leikskólum á félagssvæði Starfsmannafélagsins gjöf til kaupa á kennslugögnum fyrir nemendur. Skorað er á félagsmenn að fjölmenna á fundinn. Góðar veitingar í boði.
Stjórn STH