Ársfundur Lsj. Stapa fór fram í gær í Hofi á Akureyri. Fundurinn var vel sóttur auk þess sem hann fór mjög vel fram. Með því að fara inn á stapa.is er hægt að fræðast betur um fundinn. Að venju var ársfundurinn opinn öllum sjóðfélögum. Framsýn átti góða fulltrúa á fundinum. Fulltrúi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum hlaut áframhaldandi kjör í stjórn sjóðsins til næstu tveggja ára. Þá var formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson fenginn til að stjórna ársfundinum. Hér má fræðast betur um þau málefni sem voru til umræðu á fundinum:
Gögn fundarins:
Ársreikningur Stapa 2025
Ársskýrsla Stapa 2025
Starfskjarastefna
Tillögur fyrir ársfund Stapa


