Gott morgunspjall

Efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins til sveitarstjórnar Norðurþings tóku morgunspjall með formanni Framsýnar í morgun. Þetta voru þau Helena Ingólfsdóttir og  Þorsteinn Benediktsson. Farið var yfir stöðuna í sveitarfélaginu, áskoranir og ógnanir ekki síst í atvinnulífinu nú þegar starfsemi PCC liggur niðri.  Frambjóðendurnir gáfu sér góðan tíma enda mikilvægt að hagsmunaaðilar sameinist um að vinna saman að framgangi sveitarfélagsins og sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum þar sem það er ekki í boði að sitja hjá.

Deila á