Opinn fundur um stöðu félagsmanna Framsýnar í daglegu lífi

Framsýn stéttarfélag stendur fyrir opnum kynningarfundi fimmtudaginn 16. apríl kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26.

Á fundinum verða kynntar nýjar niðurstöður úr sérvinnslu Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins um stöðu félagsfólks Framsýnar. Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu gerir grein fyrir helstu niðurstöðum könnunarinnar sem eru mjög athyglisverðar.

Varða leggur árlega fyrir kannanir meðal félagsfólk í aðildarfélögum ASÍ og BSRB.

Framsýn óskaði eftir úttekt á stöðu félagsmanna og eru þær settar fram í samanburði við annað launafólk á Íslandi. Fjallað verður m.a. um stöðuna á vinnumarkaði, húsnæðismarkaði sem og fjárhagsstöðu og heilsufar félagsfólks Framsýnar.  

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta á fundinn sem er öllum opinn fimmtudaginn 16. apríl kl. 17:00.

Framsýn stéttarfélag

Deila á