Frábær hittingur

Starfsmenn  Einingar-Iðju og stjórn félagsins gerðu sér ferð til Húsavíkur í gær. Markmiðið var að funda með forsvarsmönnum Framsýnar um nánara samstarf auk þess að fara í vinnustaðaheimsóknir á Húsavík. Eftir upplýsandi dag var endað á því að fara í Sjóböðin. Að sjálfsögðu var komið við í Grobbholti áður en hópurinn kláraði daginn með sameiginlegum kvöldverði frá Golfskálanum. Í Grobbholti var boðið upp á hangikjöt og Mola-bjór sem þykkir enstakur enda bruggaður eftir leyniuppskrift. Glæsilegur dagur í alla staði.

Deila á