Framsýn stéttarfélag óskar eftir fulltrúum til að fara með atkvæðisrétt félagsins á ársfundi Stapa lífeyrissjóðs, mánudaginn 27. apríl nk. kl. 14.00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Aðeins þeir félagsmenn sem greiða lífeyrissjóðsgjöld til Stapa lífeyrissjóðs eiga seturétt á ársfundinum.
Gögn ársfundar verða aðgengileg á vefsíðu sjóðsins www.stapi.is a.m.k. tveimur vikum fyrir ársfund.
Áhugasöm eru beðin um að gefa sig fram við formann Framsýnar, Aðalstein Árna Baldursson á Skrifstofu stéttarfélaganna fyrir hádegi þann 15. apríl n.k. til að fá nánari upplýsingar. Einnig er hægt að hafa samband á netfangið kuti@framsyn.is
Framsýn stéttarfélag