Þingmenn og starfsmenn Samfylkingarinnar eru á ferðinni um landið til að hitta kjósendur á formlegum opnum fundum auk þess að heimsækja m.a. fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir. Markmiðið er ekki síst að taka almennt stöðuna á hverju landssvæði. Hópur á þeirra vegum, sem er á Húsavík í dag, leit við hjá formanni Framsýnar sem fór yfir stöðuna í atvinnumálum á félagssvæðinu. Þá gerði hann alvarlegar athugasemdir við nokkur frumvörp sem eru til umræðu og afgreiðslu á Alþingi og snerta málefni verkafólks. Taldi hann rétt að stjórnvöld hlustuðu á verkalýðshreyfinguna og drægu frumvörpin til baka eða gerðu víðtækar breytingar á þeim. Gestirnir tóku við ábendingunum og sögðust taka þær til skoðunar.